Guðmundur Birkir Pálmason | Fyrir Framan Barinn
Happy Hour með The Viceman
Guðmundur Birkir Pálmason er Kírópraktor að mennt og er eigandi Kírópraktor stöðvar Reykjavíkur, Þess fyrir utan er hann abstract myndlistarmaður og málar einstaklega falleg málverk undir listamanna nafninu Norr. Það er óhætt að segja að Gummi Kiro (eins og hann er gjarnan kallaður) sé með mörg járn í eldinum og því ekki skrítið að honum þyki nauðsynlegt að róa taugarnar eftir krefjandi daga með góðum veigum.
Koma þar Ítölsk léttvín sérstaklega til greina enda þykir honum Ítalía frábært land á margan hátt. Nefnir Gummi fyrst og fremst léttvín enn af sama skapi höfðar ítölsk matarmenning og ítölsk hönnun sérstaklega til hans. Það sem Viceman þykir hvað áhugaverðast við Gumma er hversu mikill metnaður liggur á bakvið allt sem hann tekur sér fyrir hendur og á það ekkert síður við þegar stendur til að velja vín til að dreypa á eftir amstur dagsins eða í góðra vina hópi.
Viceman hjó sérstaklega eftir nálgun Gummi á léttvíns heiminn enda segist hann vera lagður af stað í ferðalag um þann heim sem hann sér ekki fyrir endan á. Eins konar óvissuferð léttvína og fer óvissuferðin að miklu leyti fram um sveitir Ítalíu þessa dagana. Það sjá fæstir fyrir endan á óvissuferð og hvað þá um heim léttvína og segist Gummi tilbúinn til að ferðast hvert sem bragðlaukarnir fara með hann i framtíðinni svo lengi sem gæði og gott bragð á sér stað í þeim vínum sem hann smakkar.
Gummi var gestur í hlaðvarpsþættinum Fyrir Framan Barinn í Happy Hour með The Viceman.
Hér fyrir neðan má nálgast þáttinn:
Happy Hour með The Viceman má nálgast á efir farandi miðlum:
Beinn linkur á: Spotify , Iphone , Android
Beinn linkur á: Overcast , Podtail , Mytuner , Listen Notes
Ert þú að fylgja Viceman Instagram og Facebook?
Fróðleikur, uppskriftir og myndbönd um veigar í fljótandi formi
Ekki gleyma að henda í Like, Comment og Follow