Viceman@HOME – Espresso Martini
Svona í ljósi þess ástands sem er um allan heim og sú staðreynd að fólk getur ekki komið saman og notið góðs matar og drykkja þá ætlar Viceman að kenna ykkur að gera nokkra lauflétta kokteila sem hægt er að gera heima.
Ekki er nauðsynlegt að eiga öll hin hefðbundnu baráhöld til þess að skapa hina fullkomnu kokteila.
Hér að neðan má sjá stutt innslag þar sem Viceman fer yfir hvernig skal gera hinn fullkomna Espresso Martini.
Njótið vel og gleðilega páska.
Uppskriftin af þessum fullkomna Espresso Martini er svo:
– 45 ml Vodka
– 20 ml Kahlua kaffilíkjör
– 15 ml sykursíróp (50/50 vatn og sykur hitað saman)
– 30 ml espresso kaffi ( 1 skot)