Tefélagið | í Fljótandi Formi
Happy Hour með The Viceman
Þættirnir Í Fljótandi Formi eru ósjálfrátt búnir að skapa sér sinn eigin farveg. Í þáttunum fær Viceman til sín fólk úr öllum áttum, frumkvöðla, framleiðendur eða aðra spekúlanta sem eiga það sameiginlegt að vilja spjalla um áhugaverðar veigar í fljótandi formi.
Eftir þáttinn með þeim Rögnu og Manuel sem eiga Kombucha Iceland þótti Viceman það rökrétt að halda áfram á svipaðri vegferð og kynnast te heiminum enn frekar enda Te næst vinsælasti drykkur heims á eftir vatni.
Þegar Viceman komst á snoðir um það að innan veggja Tefélagsins væri einnig að finna vöruna Sparkling Tea sem fellur undir málefni þáttarins Vínkaraflan 0% þar sem Viceman ræddi við Vínþjóninn Jóhanni Marel um möguleika og framboð á drykkjum fyrir þá sem kjósa að drekka óáfengt.
Það var því borðliggjandi að slá tvær flugur í einu höggi og jafnvel enn fleiri með með þvi að bjóða þeim Sólrúnu og Andra hjá Tefélaginu í heimsókn í Happy Hour og fara yfir málin.
Umræðuefni þáttarins: Te, Te menning, óáfengir drykkir, og allt milli himins og jarðar.
Þáttin með Tefélaginu má finna hér að neðan:
Lesa meira um te geta heimsótt www.tefelagid.is
Happy Hour með The Viceman má að auki finna á:
Spotify, Apple Podcast, Google Podcast