Ásgeir Már Björnsson | Hristarinn
Happy Hour með The Viceman
Ásgeir eða Ási eins og hann er kallaður er án efa einn af áhrifamestu barþjónum seinni tíma á Íslandi. Það muna sennilega margir eftir því þegar Slippbarinn opnaði og braut ákveðið blað í kokteila menningu hér á landi.
Vissulega höfðu kokteilar verið gerðir hér svo árum skiptir enn skrefið var tekið örlítið lengra á Slippbarnum sem að mati margra varð til þess að kokteilar urðu fyrir valinu hjá áður bjór og vín þyrstum gestum landsins.
Kokteilarnir voru ögrandi og sama má segja um þann sem stjórnaði þessu öllu saman á bakvið barinn. Ási hefur í mörg ár verið eitt af stóru nöfnunum í barsenu landsins. Hann er barþjónn með sterkar skoðanir og hefur tekist að framkvæma margt sem síðar hefur haft gríðarlega jákvæð áhrif á þróun kokteilsins á Íslandi.
Ber þar að nefna Slippbarinn, Pablo Discobar og Reykjavík Bar Summit sem allt er krufið í þættinum. Hann starfar í dag á barnum Mikropolis í Danmörku og hægt er að fylgjast með honum á instagraminu @mixmasterflex
Ási var gestur Viceman í hlaðvarpsþættinum Hristarinn sem finna má í Happy Hour með The Viceman.
Þáttinn með Ása má finna hér að neðan:
Happy Hour með The Viceman má nálgast á efir farandi miðlum:
Beinn linkur á: Spotify
Beinn linkur á: Iphone , Android , Overcast , Podtail , Mytuner , Listen Notes
Ert þú að fylgja Viceman Instagram og Facebook?
Fróðleikur, uppskriftir og myndbönd
Skáðu þig í facebook grúppuna Happy Hour með The Viceman
Ekki gleyma að henda í Like, Comment og Follow