• Heim
  • Happy Hour

Ásta Ósk Hlöðversdóttir

Ásta Ósk Bruggmeistari Ölvisholt

Ásta Ósk Bruggmeistari Ölvisholt | Bjórdælan
Happy Hour með The Viceman

Það er við hæfi að þessi umfjöllun birtist þann 1. mars betur þekktur sem bjórdagurinn. Það kannast flestir við þá staðreynd að á þessum degi fyrir 31 ári síðan var  bjórinn aftur leyfður til sölu eftir að hafa verið bannaður á landinu síðan 1915.
Nánar má lesa um það hér

Ásta Ósk Hlöðversdóttir varð á þessum degi fyrir þremur árum síðan fyrsta kona í sögunni til að gegna starfi atvinnu bjór bruggara á Íslandi þegar hún var ráðin bruggmeistari Ölvisholts árið 2017.  

Ásta var gestur Viceman í hlaðvarps þáttaröðinni  Bjórdælan sem er ein af fimm þáttaröðum í Happy Hour með The Viceman. Í þættinum fóru Viceman og Ásta yfir ýmis málefni sem tengjast bjórgerð og að sjálfsögðu var farið í saumana á þeim bjórum sem bruggaðir eru í Ölvisholti.

Viceman leggur mikla áherslu á að leyfa hlustendum að kynnast viðmælendum Happy Hour og það er óhætt að segja að Ásta er einstaklega hress og skemmtileg kona sem auðvelt er að tala við og því var stutt í húmorinn á köflum í þættinum.  

Í þættinum má einnig heyra  spurninga liðin Skilvindan þar sem Ásta þurfti að spreyta sig á krefjandi spurningum og svara eftir bestu getu.
Á næstu dögum má nálgast Skilvinduna í videotæku formi á instagram síðu Viceman.
Sérstakir spurninga hönnuðir í Skilvindunni eru þeir Hjörvar á Brewdog, bjór sérfræðingur og Hjörvar trukkabílstjóri, bjór áhugamaður. 

Þáttinn Bjórdælan með Ástu í heild sinni má finna hér að neðan:

Happy Hour með The Viceman má að auki finna á:

Spotify, Apple Podcast og öllum helstu hlaðvarps veitum
Ert þú að fylgja Viceman á Instagram og Facebook?

Instagram

Nýjar greinar

50 bestu barir í heimi

50 bestu barir í heimi Þann 3 október síðsast liðin var gefið út hvaða barir væru á árlegum lista...

Aðalfundur BCI

Mánudaginn 14 oktober var haldin aðalfundur Barþjóna Klúbbs Íslands BCI  þar sem kosið var í stjórn klúbbsins. Að auki var kosinn nýr...
audio

Jónmundur Þorsteinsson

Happy Hour með The Viceman Jónmundur Þorsteinsson | Hristarinn Jónmundur eða...
audio

Þórhildur Kristín

Happy Hour með The Viceman Þórhildur Kristín Lárentínusardóttir | Hristarinn Þórhildur eða Tóta eins og hún...
audio

Ingi Sigurðsson

Happy Hour með The Viceman Ingi Sigurðsson | Íslandsvinurinn Ingi er Íslendingur að uppruna sem fæddist...