• Heim
  • Fréttir

White Russian með Sauðamjólk

Á undanförnum árum hefur áhugi á kokteilum aukist út um allan heim og er Ísland þar engin undantekning. Viceman er mikill kokteila unnandi og það er óhætt að segja að hann fari oftar en ekki sínar eigin leiðir í kokteila gerðinni eins og má lesa hér að neðan.

White Russian er einn þekktasti kokteill í heiminum og á hann sér aðdáendur á ótrúlegustu stöðum. Undirstaða White Russian er Vodka og þar fast á eftir fylgir kaffilíkjör og rjómi, Vinsældir kokteilsins ná allt frá sjávar til sveita og eftir sauðburðs dvöl Viceman hjá frændum sínum á Skarði í Lundarreykjadal ákvað Viceman að búa til frumlega en að sama skapi skemmtilega útgáfu af þessum heimsþekkta kokteil.

Það er óhætt að segja að uppskriftin sé óhefðbundin enda hefur rjómanum verið skipt út fyrir sauðamjólk beint úr spena á rollu einni. Útkoman var drykkur sem gengur undir nafninu Rússnensk Rolla. Það sem gerir sauðamjólkina sérstaka er hversu fitusprengd hún er og verður því áferðin einstaklega mjúk og ljúffeng sökum þess eins.

Uppskrift af Rússnenskri rollu má nálgast hér

Hér má sjá video af Viceman blanda kokteilin í fjárhúsinu á Skarði

Hér að neðan má sjá skemmtilegar myndir úr sauðburði á Skarði í Lundarreykjardal:

Instagram

Nýjar greinar

50 bestu barir í heimi

50 bestu barir í heimi Þann 3 október síðsast liðin var gefið út hvaða barir væru á árlegum lista...

Aðalfundur BCI

Mánudaginn 14 oktober var haldin aðalfundur Barþjóna Klúbbs Íslands BCI  þar sem kosið var í stjórn klúbbsins. Að auki var kosinn nýr...
audio

Jónmundur Þorsteinsson

Happy Hour með The Viceman Jónmundur Þorsteinsson | Hristarinn Jónmundur eða...
audio

Þórhildur Kristín

Happy Hour með The Viceman Þórhildur Kristín Lárentínusardóttir | Hristarinn Þórhildur eða Tóta eins og hún...
audio

Ingi Sigurðsson

Happy Hour með The Viceman Ingi Sigurðsson | Íslandsvinurinn Ingi er Íslendingur að uppruna sem fæddist...