Lína Birgitta | Fyrir Framan Barinn
Happy Hour með The Viceman
Lína Birgitta var gestur Viceman í hlaðvarps þættinum fyrir Fyrir Framan Barinn í Happy Hour. Það er óhætt að segja að þrátt fyrir ungan aldur hefur þessi efnilega kona nú þegar náð miklum árangri í markaðsetningu á netmiðlum enda hefur hún látið mikið á sér bera á samfélags miðlum á undanförnum árum.
Til marks um það má nefna að hún er eigandi vöru línunar Define the linesem og hugmyndasmiðurinn af þáttunum Tinder Laugin sem hefur fengið gífurlega athygli á undanförnum vikum. Að eigin sögn segir Lína að gagnrýnin hafi verið bæði jákvæð og neikvæð en athyglin sem þátturinn hafi fengið verið eitthvað sem hún sá ekki fyrir.
Lína er mikill kokteila unnandi og var það titill af instagram færslu “Gellur elska kokteila” sem seldi Viceman hugmyndina af því að fá hana í Happy Hour ásamt því að vera einnig þekkt fyrir einstaklega smitandi hlátur sem staðfestist í þættinum.
Þáttin með Línu má finna hér að neðan:
Happy Hour með The Viceman má að auki finna á:
Spotify, Apple Podcast, Google Podcast