Happy Hour með The Viceman er nýtt hlaðvarp sem fjallar um veigar í fjótandi formi. Í Happy Hour fær Viceman til sín góða gesti sem eiga það allir sameiginlegt að hafa ástríðu fyrir góðum drykkjum og þykkja skemmtilegt að segja sína skoðun á þeim. Happy Hour er hlaðvarp sem tengir barsenu Íslands við fólkið í landinu.
Uppkast frá hverju hlaðvarpi mun svo birtast á viceman.is enn fjallað verður um drykki, vín, bjór kaffi, te, óáfenga drykki og annað sem er í fljótandi formi og því ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi í Happy Hour.
Í Happy Hour verða ýmsir liðir eins og:
Hristarinn er þáttur sem Viceman fær til sín helstu barþjóna landsins og hristir úr þeim vitneskjuna. Þar fá hlustendur að kynnast barþjónunum enn betur og fá að heyra góð ráð við blöndun drykkja, skemmtilegar sögur, kokteil uppskriftir og fleira.
Karaflan er eins og nafnið gefur til kynna þáttur þar sem aðal fókusinn er á léttvín. Í þættinum sest Viceman niður með helstu vín sérfræðingum landsins og spáir í léttvínum. Hlustendur fá frammúrskarandi ráð við vali á vínum, fræðandi sögur og hugmyndir af vínpörunum með mat.
Íslandsvinir er þáttur þar sem Viceman spjallar við fólk sem heimsækir Ísland og verða eins og allir sem sækja landið heim, Íslandsvinir. Á hverju ári koma til landsins barþjónar, vínframleiðendur, bjórbruggarar, vörumerkjastjórar og annað fólk sem tengist barbransanum.
Fyrir Framan Barinn er þáttur fyrir ALLA! í þættinum fær Viceman til sín fólk úr öllum öðrum sviðum samfélagsins heldur enn einmitt barheiminum og fiskar eftir þeirra upplifun á því að vera fyrir framan barinn. Í þættinum koma fram skemmtilegar reynslusögur og góð ráð til þeirra sem vinna í barheiminum.
Einnig verður hægt að kíkja baksviðs á bæði instagram og facebook