• Heim
  • Fréttir
  • Happy Hour

Höskuldur – Hauksson Weine

Höskuldur á góðri stundu
Vínkaraflan

Höskuldur Hauksson |Vínkaraflan

Happy Hour með The Viceman


Höskuldur Hauksson er íslenskur vínbóndi sem framleiðir vín undir nafninu Hauksson Weie í Sviss. Vínin hafa heldur betur fallið í kramið hjá Íslendingum og verður það að teljast afar skemmtilegt að við Íslendingar getum verslað frábær léttvín gerð með Íslensku handbragði.

Höskuldur kemur úr fjármála geiranum og hefur alla tíð verið mikill vín unnandi. Það var svo árið 2013 að hann keypti heilt tonn af Pinot Noir vínþrúgunni og byrjaði að framleiða rauðvín heima hjá sér.
Þá var ekki aftur snúið og fljótlega fór þetta að verða of stórt áhugamál sem varð til þess að hann sagði sig skilið við fjármála geiran og fór að einbeita sér að því að vera vínbóndi.

Síðan þá hefur honum tekist að framleiða og koma á markað vínum úr nokkrum mismunandi vín þrúgum sem eins og áður sagði hafa hlotið mika athygli og má nálgast nokkur þeirra í ríkinu. Sjá meira

Það sem vert er að taka sérstaklega eftir eru aðferðirnar sem Höskuldur kýs að nota við framleiðslunna. Hann ræktar vín ekrurnar sínar á líffvænan hátt (bio dynamic) og hefur það sem aðal markmið að framleiða hreint og gæða mikið vín.

Þrátt fyrir að Höskuldur búi í Sviss þá hugsar hann mikið um þá sem kaupa vínin frá Hauksson á Íslandi. Reglulega heldur hann vínsmakk yfir netið þar sem fólk getur pantað vín smökkunar kassa og smakkað á meðan Höskuldur útskýrir og fræðir frá víngarðinum í Sviss.

Næsta vínsmakk verður til að mynda 20 Mars og er hægt að panta vín fyrir smakkið fram að 28 febrúar. Til að panta vín smelltu hér


Höskuldur var gestur Viceman í þættinum Vínkaraflan sem finna má í Happy Hour hlaðvarpinu. Þáttinn má finna hér að neðan:


Happy Hour með The Viceman má nálgast á efir farandi miðlum:
Beinn linkur á: Spotify , Iphone , Android
Beinn linkur á: Overcast , Podtail , Mytuner , Listen Notes  

Fylgdu Happy Hour með The Viceman á instagram

Skáðu þig í facebook grúppuna Happy Hour með The Viceman

Ert þú að fylgja Viceman Instagram og Facebook?

Fróðleikur, uppskriftir og myndbönd

Ekki gleyma að henda í Like, Comment og Follow


Tékkaðu einnig á eftirfarandi þáttum…….

Instagram

Nýjar greinar

50 bestu barir í heimi

50 bestu barir í heimi Þann 3 október síðsast liðin var gefið út hvaða barir væru á árlegum lista...

Aðalfundur BCI

Mánudaginn 14 oktober var haldin aðalfundur Barþjóna Klúbbs Íslands BCI  þar sem kosið var í stjórn klúbbsins. Að auki var kosinn nýr...
audio

Jónmundur Þorsteinsson

Happy Hour með The Viceman Jónmundur Þorsteinsson | Hristarinn Jónmundur eða...
audio

Þórhildur Kristín

Happy Hour með The Viceman Þórhildur Kristín Lárentínusardóttir | Hristarinn Þórhildur eða Tóta eins og hún...
audio

Ingi Sigurðsson

Happy Hour með The Viceman Ingi Sigurðsson | Íslandsvinurinn Ingi er Íslendingur að uppruna sem fæddist...