Kombucha Iceland | Í Fljótandi Formi
Happy Hour með the Viceman
Sífelt fleiri hafa kynnt sér Kombucha og eflaust margir sem hafa heyrt á það minnst. Skyldi engan furða þar sem þessi magnaði drykkur virðist hafa breytt lífi fólks til hins betra.
Til að rökstyðja það enn frekar má lesa viðtal við Íþróttakonuna Sædísi Jónsdóttur sem birtist á DV þar sem hún lofsamar virkni Kombucha og þá sérstaklega Kombucha Iceland.
Viceman hefur lengi ætlað að kynna sér þennan drykk, sögu drykksins og framleiðsluferli. Það var því tilvalið að láta loksins verða að því.
Í nýjasta þætti af íÍFljótandi Formi sem er að finna í Happy Hour með The Viceman settist Viceman á rökstóla með hjónunum Rögnu og Manuel sem eiga og reka Kombucha Iceland.
Þáttinn má nálgast hér að neðan, á Spotify og öllum helstu hlaðvarps veitum.